Verkurinn hvarf við inntöku Amino Collagen

Valdís Sigurgeirsdóttir.
Valdís Sigurgeirsdóttir.

„Kollagen framleiðsla líkamans dalar í kringum 25 ára aldur og áfram eftir það. Um leið og kollagen framleiðslan minnkar veikjast vefir líkamans sem getur orðið til þess að bera fer á ýmsum öldrunareinkennum eins og verkjum í liðum og liðamótum. Einnig minnkar teygjanleiki húðarinnar og hrukkur fara að myndast. Rannsóknir hafa sýnt fram á að með inntöku á kollagen próteini er hægt að minnka verki í liðum og draga verulega úr hrukkumyndun. Þannig er talið að megi bæta fyrir tapað kollagen og auka kollagen framleiðslu líkamans. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt fram á að öldrun húðarinnar fer að mestu fram í bandvefnum þar sem meginuppistaðan er kollagen,“ segir Valdís Sigurgeirsdóttir flugfreyja hjá Icelandair og matarbloggari á Ljómandi.is.

Í janúar fór Valdís að finna fyrir óþægindum í hægri úlnlið. Í fyrstu hélt hún að þessi verkur væri kominn til vegna álags og myndi hverfa á næstu dögum en svo var ekki. Þegar hún var búin að vera með verkinn í 2-3 vikur ákvað hún að taka til í mataræðinu.

„Ástæða þess að ég ákvað að fara í svo langa hreinsun var einfaldlega sú að ég fann að ég var loksins tilbúin að taka skrefið því það þýðir ekkert að fara í svona langt hreinsunarferli ef hausinn er ekki með. Þrátt fyrir að borða almennt frekar hollt hafði ég borðað of mikinn sykur í of langan tíma þó svo ég borði nú frekar lítið sælgæti. Ég fann hann einfaldlega annars staðar eins og t.d. í þurrkuðum ávöxtum, heimabökuðu heilsunammi fullu af „hollum” sykri og svo auðvitað var ég áskrifandi að dökku, lífrænu súkkulaði og náði að plata sjálfa mig með því. Þrátt fyrir að hafa minnkað stórlega mjólkurneyslu frá því sem áður var þá var osta- og mjólkurneyslan eitthvað farin að aukast aftur hjá mér. Ég borðaði of lítið grænmeti og of mikið af hveitimjöli hvort sem það var spelt, heilhveiti eða hvað sem það heitir allt saman. Og ég var s.s. byrjuð að finna til í liðum, eitthvað sem hefur aldrei háð mér. Í minni ætt er mikið um gigt og ég veit að ef ég passa mig ekki þá enda ég sennilega líka með gigt,“ segir hún.

Valdís er mikil Hot jóga-kona og fann fyrst fyrir verknum í úlnliðnum eftir slíkan tíma.

„Ég gat ekki rétt almennilega úr hægri hendinni og haldið mér uppi og varð frekar hissa á að geta ekki gert þær æfingar sem ég var vön að gera. Auðvitað hef ég fengið álagsmeiðsli en þetta var eitthvað öðruvísi. Og ég tengdi það því sem ég hafði verið að borða.“

Valdís leitaði sér hjálpar hjá fagaðilum og breytti algerlega um mataræði í fimm mánuði.

„Það var þá sem kveikjan að þessu matarbloggi byrjaði. Ég hafði aldrei áður sleppt glúteni og fór þess vegna að gúggla og safna að mér þess konar uppskriftum. Matarbloggið hefur þó þróast í að vera ekki aðeins fyrir þá sem vilja sleppa glúteni og sykri heldur bara svona almennt hollari uppskriftir því í dag borða ég alveg glúten og sykur, bara í minna mæli en áður. Ég fór að taka inn meira af jurtum en þær eru ótrúlega kröftugar og hjálpa hreinsilíffærum til að vinna betur, en það eru t.d. lifur, lungu, nýru og ristlll. Jurtir vinna hægar, það þarf að taka þær í lengri tíma og sýna þolinmæði. Þrátt fyrir allar þessar breytingar hvarf verkurinn í úlnliðnum ekki og hafði verið viðvarandi í heila fimm mánuði. Ég hafði aldrei áður haft verki í lengri tíma í liðum og liðamótum þannig að það hafði áhrif á mínar daglegu venjur.“

Svo fór Valdís að lesa sér til um collagen og ákvað að prófa Amino Collagen sem er íslensk afurð og búin til úr fiskroði.

„Þegar ég las mér til þá sá ég að kollagen er eitt aðal uppbyggingar prótein líkamans. Það er að finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum og beinum. Það finnst einnig í húð, hári og nöglum. Það hefur einnig áhrif á húðina því þegar aldurinn færist yfir hægist á framleiðslu kollagens í líkamanum og þá byrja vefirnir að slappast og blessuð húðin að hrukkast. Ég ákvað að prófa nýja vöru sem kallast Feel Iceland Amino Collagen og er unnið úr fiskiroði. Á fjórum vikum hvarf verkurinn í úlnliðnum auk þess sem ég fór að taka eftir breytingu á hárinu á mér. Ég var búin að vera með mjög mikið hárlos í frekar langan tíma sem dró verulega úr og hárið styrktist. Það sem er svo frábært við Feel Iceland Amion Collagen er að það er 100% hrein íslensk vara unnin úr fiskroði og á að viðhalda teygjanleika og raka húðarinnar með sjaldgæfri samsetningu amínósýra. Kollagenið á að geta minnkað verki í liðum, sem ég svo sannarlega fann og það dregur úr niðurbroti vöðva eftir æfingu.“

Valdís segist alls ekki tíma að hætta að taka inn collagenið því hún trúir á langtímaáhrif þess.

„Kannski tók það líkamann minn þetta langan tíma að losa sig við það sem hann þurfti og ná jafnvægi. Kannski einungis þess vegna fór verkurinn. Nú í dag er ég ekki á eins ströngu matarprógrammi en ég tými alls ekki að hætta að taka inn kollagenið því ég trúi að langtímaáhrif þess eigi bara eftir að vera hafa góð áhrif. Maðurinn minn hefur haft verk í mjóbaki í mörg ár og bara með því að taka inn kollagen í einn mánuði finnur hann mikinn mun á sér. Ég er sannfærð um að matur hefur ótrúlega mikið að segja um líkamsástand okkar. En það er jafnframt mín skoðun að kollagenið hafi hjálpað mikið til við að halda liðunum og öllum bandvef líkamans heilum.“

Valdís setur Amino Collagenið út í grænan drykk.
Valdís setur Amino Collagenið út í grænan drykk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál