„Sykur ætti að skattleggja eins og tóbak“

Sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver.
Sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver.

Óhóf­leg syk­ur­neysla hefur ýmsar slæmar afleiðingar og er tal­in or­saka­vald­ur margra sjúk­dóma. Þetta vita flestir sem neyta sykurs en það er hægara sagt en gert að forðast allan sykur því hann er afar ávanabindandi.

Breski sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver vill að bresk yfirvöld grípi í taumana og skattleggi sykur eins og tóbak.

Sykruð matvæli geta valdið faraldri alveg eins og reykingar, því ætti að skattleggja sykur eins og tóbak að mati Olivers. Hann hefur áhyggjur af þeim kostnaði sem fellur á breska heilbrigðiskerfið vegna óhóflegrar sykurneyslu almennings. Hann vill þá að Bretar feti í fótspor Frakka sem tóku upp sykurskatt árið 2011.

„Sykur er klárlega næsti óvinurinn. Hann er næsta tóbakið, án efa, og þessi iðnaður ætti að óttast. Sykur ætti að skattleggja eins og tóbak og annað sem getur hreinlega eyðilagt líf fólks,“ sagði Oliver í viðtali við Daily Mail.

Sykurskattur var tekinn upp á Íslandi árið 2009 en í fjárlagafrumvarpi 2015 kemur fram að gert sé ráð fyrir að sykurskattur verði felldur brott 1. janúar 2016.

Gosdrykkir innihalda gjarnan mikið magn sykurs.
Gosdrykkir innihalda gjarnan mikið magn sykurs.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál