Við Öldugötu í Reykjavík stendur glæsileg íbúð þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja. Íbúðin er smekklega endurnýjuð.
Eldhúsið, stofan og borðstofan tengjast í einu stóru rými. Eldhúsið er nýlegt með hvítri sprautulakkaðri innréttingu og viðarborðplötum. Á baðherberginu eru innréttingar í sama stíl.
HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar.
Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting.
Bekkurinn við eldhúsborðið býr til góða stemningu í rýminu.
Eldhúskrókurinn er sjarmerandi.
Svona lítur herbergisgangurinn út.
Horft í hina áttina út ganginn.
Borðstofan og eldhúsið tengjast á sjarmerandi hátt.
Baðherbergið er ákaflega vandað og vel heppnað.
Á baðherberginu er fínt skápapláss.
Hjónaherbergið er rúmgott.
Sniðug lausn fyrir fataherbergið.
Við húsið er huggulegur garður.
Barnaherbergið er litríkt.