Íburðurinn fer yfir öll mörk - MYNDIR

Húsið er glæsilegt að utan.
Húsið er glæsilegt að utan. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain

Þeir sem hafa heimsótt Las Vegas í Nevada-ríki í Bandaríkjunum vita að þar er allt stærra og rosalegra en annars staðar í heiminum. Það ætti því ekki að koma á óvart að heimili fólks séu í svipuðum anda.

Í þessu einbýli sem hannað var af assembladeSTUDIO má sjá hvernig má vinna með stórkostlegan efnivið, form og hugvit þannig að íburðurinn fari yfir öll mörk. 

Granít hittir hnotu og gegnheilan stein og er hugsað út í hvert smáatriði. Í húsinu er ekki bara risastórt eldhús heldur ævintýraleg baðherbergi og útsýni yfir eyðimörkina eins og hún gerist best.

Í húsinu er svo hátt til lofts og vítt til veggja að það væri hægt að halda þarna fermingarveislur dag eftir dag án þess að það myndi þrengja að neinum og svo er sundlaug. Sem er alveg nauðsynlegt á þessum stað í heiminum því í Nevada getur orðið mjög heitt og þá er nú gott að geta tekið eins og einn góðan sundsprett.

Í eldhúsinu er risastór eyja sem er klædd með graníti.
Í eldhúsinu er risastór eyja sem er klædd með graníti. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Borðstofan og stofan mætast.
Borðstofan og stofan mætast. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Hægt er að opna stofuna alveg upp á gátt.
Hægt er að opna stofuna alveg upp á gátt. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Það vantar ekki vinnuplássið í þetta eldhús.
Það vantar ekki vinnuplássið í þetta eldhús. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Horft inn í garðinn.
Horft inn í garðinn. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Hafið þið séð stærra útieldhús?
Hafið þið séð stærra útieldhús? Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Horft upp stigann.
Horft upp stigann. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Baðherbergið er hvítt í hólf og gólf. Hvítt glerið er …
Baðherbergið er hvítt í hólf og gólf. Hvítt glerið er áberandi. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Á þessu baðherbergi er gólfefnið frekar óvenjulegt.
Á þessu baðherbergi er gólfefnið frekar óvenjulegt. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Huggulegt herbergi.
Huggulegt herbergi. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Útsýnið úr hjónaherberginu er stórkostlegt.
Útsýnið úr hjónaherberginu er stórkostlegt. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Ljósakrónan fyrir ofan stigann er stór og mikil.
Ljósakrónan fyrir ofan stigann er stór og mikil. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Magnað ljós.
Magnað ljós. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Horft inn í eldhúsið úr stofunni.
Horft inn í eldhúsið úr stofunni. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Garðurinn í kringum húsið er vel hannaður.
Garðurinn í kringum húsið er vel hannaður.
Brúin á milli skapar stemningu í garðinum.
Brúin á milli skapar stemningu í garðinum. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Útisvæðið er heillandi. Hér svolítið óvenjuleg útgáfa af arinn.
Útisvæðið er heillandi. Hér svolítið óvenjuleg útgáfa af arinn. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Sundlaugin skapar fantaflotta stemningu.
Sundlaugin skapar fantaflotta stemningu. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Það er gott útsýni úr sundlauginni í garðinum.
Það er gott útsýni úr sundlauginni í garðinum. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
Það er smart að setja endalausa kaktusa í blómabeðin.
Það er smart að setja endalausa kaktusa í blómabeðin. Ljósmynd/Bill Timmerman og Zack Hussain
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál