Við Brekkutún í Kópavogi stendur glæsilegt einbýli sem mikið hefur verið endurnýjað. Húsið var byggt 1982 og er 288 fm að stærð. Að innan er hugsað út í hvert smáatriði og hafa húsráðendur næmt auga fyrir hönnun og hvernig á að raða húsgögnum saman.
Um er að ræða sannkallað fjölskylduhús með fimm svefnherbergjum og nægilegu rými þannig að fjögur börn geti haft það náðugt við leik og störf.
Húsið er á þremur hæðum en það skiptist í aðalhæð, ris og kjallara. Í kjallaranum er aukaíbúð með sérinngangi.
HÉR er hægt að skoða húsið nánar.