Pétur Gautur upp á vegg Orla Kiely

Hér sést myndin eftir Pétur Gaut betur.
Hér sést myndin eftir Pétur Gaut betur. Ljósmynd/The Dwell

Pétur Gautur er einn þekktasti listamaður landsins. Hann er þó ekki bara vinsæll hérlendis því hinn heimsfrægi írski hönnuður, Orla Kiely, er með mynd eftir Pétur Gaut uppi á vegg hjá sér. Þegar The Times Magazine tók hús á hönnuðinum blasti myndin við og líka þegar hönnunartímaritið Dwell birti myndir af heimili hönnuðarins.

Orla Kiely er mjög þekkt fyrir laufblaðamunstur sín sem hafa verið notuð í veggfóður, í heimilisvörur og textíl. Í tæplega 20 ár hefur Kiely byggt upp sitt merki sem gerir ekkert annað en að vaxa og dafna.

Kiely býr í suðvestur London og er heimili hennar mjög einkennandi fyrir hönnun hennar. Hún er textíl-menntuð og hefur unnið mest í því að hann eigin munstur sem hún hefur svo gert afurðir úr. Á heimili hennar má sjá veggfóðraða veggi og húsgögn í hlýjum tónum. Eldhúsinnréttingin er ákaflega heillandi, mjög seventís-leg, en samt á sama hátt nýmóðins. Viður er einnig áberandi inni á heimili hennar eins og sést best á myndunum af vef Dwell.

Þegar Smartland Mörtu Maríu hafði samband við Pétur Gaut sagði hann að Kiely hefði komið tvisvar á vinnustofu hans hérlendis fyrir þremur eða fjórum árum og keypt nokkrar myndir.

„Ég vissi ekki hver hún var, eða þau, en hún kom með manninum sínum. Svo bauð hún mig velkominn í heimsókn í verslun sína í Covent Garden. Ég hef kíkt þar við, en ég sá hana ekki þar. Enda von, heimfrægur hönnuður sem er með verslanir um allan heim,“ segir Pétur Gautur.

Það að hún væri með verk eftir hann uppi á vegg heima hjá sér kom honum þó verulega á óvart.

„Það kom mér samt á óvart að sjá málverkið heima hjá henni því einkaritarinn hennar hafði einu sinni samband við mig og tjáði mér þá að hún keypti mikið af myndlist og ætti vísir að safni, en bar gaman að sjá málverkið á hennar einkaheimili.“

Hér sést mynd af heimili Orla Kiely sem birtist á …
Hér sést mynd af heimili Orla Kiely sem birtist á vef The TImes.
Pétur Gautur myndlistarmaður á vinnustofu hans á Snorrabraut
Pétur Gautur myndlistarmaður á vinnustofu hans á Snorrabraut mbl.is/Eggert Jóhannesson
Orla Kiely kjólar er mjög kvenlegir og fallegir í sniðinu.
Orla Kiely kjólar er mjög kvenlegir og fallegir í sniðinu. www.orlakiely.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál