Við Ljósakur í Garðabæ stendur heillandi raðhús sem er 223 fm að stærð. Húsið var byggt 2007 og var vandað til verka inni á heimilinu. Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting og eyja, sem státar af góðu vinnuplássi.
Eldhúsið og stofan eru á efri hæð hússins og er gengið út á stórar svalir úr þessu opna rými. Svalirnar eru staðsettar ofan á bílskúrnum og er búið að byggja þar skjólveggi þannig að hægt sé að hafa það huggulegt úti við.
Svo má ekki horfa framhjá því að að húsið er innréttað með ákaflega persónulegum stíl. Viðarhúsgögn eru í forgrunni og fá litir að njóta sín, bæði í málverkum og inni í eldhúsi.