Kristín Johansen selur Strandveginn

Við Strandveg í Garðabæ stendur ákaflega heillandi fjölskylduíbúð sem er meira en smekklega innréttuð. Íbúðin er í eigu Kristínar Johansen og Halldórs Harðarsonar. Kristín rekur verslunina Fló og Fransí með Svövu Johansen systur sinni. 

Íbúðin er 138 fm að stærð og stendur í húsi sem byggt var 2004. Kristín er annáluð smekkkona og er heimilið í þeim anda. Hver hlutur á sinn stað og allt fallegt og fínt. 

Í íbúðinni eru eikarinnréttingar, innihurðir og parket á gólfum. Í íbúðinni er hugsað út í hvert smáatriði. Það sem er heillandi í eldhúsinu er hvernig húsgögnum er raðað upp. Bekkurinn upp við vegginn býr til stemningu og kemur ákaflega vel út. 

HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál