Við Þrymsali í Kópavogi stendur glæsilegt einbýlishús sem byggt var 2009. Húsið er 298 fm á stærð, á tveimur hæðum og í þessum eftirsótta kassastíl sem hefur verið ansi móðins síðasta áratuginn eða svo.
Húsið er teiknað af Sigurði Hallgrímssyni arkitekt hjá Arkþing. Arkitektastofan hefur hannað mörg falleg mannvirki eins og Hof á Akureyri, Borgarleikhúsið og Seðlabankann svo fátt eitt sé nefnt. Auk þess hefur arkitektastofan hannað fjölda íbúða og einbýlishúsa í betri hverfum borgarinnar.
Pétur H. Birgisson innanhússarkitekt hannaði húsið að innan. Þar er hvergi til sparað og allt nákvæmlega eins og það á að vera.
Af fasteignavef mbl.is: Þrymsalir 12
Gluggar eru síðir í stofunni.
Secto ljósin úr Módern og sjöurnar hans Arne Jacobsen úr EPAL fara vel saman.
Eldhúsið er sérsmíðað með hvítri sprautulakkaðri innréttingu.
Eyjan í eldhúsinu er mjög stór og löng.
Horft úr borðstofunni inn í eldhús.
Horft úr forstofunni inn í hús.
Skáparnir í forstofunni eru með tvískiptum hurðum.
Veggfóðrið í herberginu gerir það ansi líflegt.
Grái liturinn kemur vel út á móti hvítum skápum og eikarparketi.
Húsið er glæsilegt að sjá frá öllum hliðum.
Baðherbergið er flísalagt uppúr og niðurúr.
Hjónaherbergið er með fataherbergi.
Baðherbergið er stílhreint.