Við Austurbrún í Reykjavík stendur ansi falleg 150 fm íbúð í húsi sem byggt var 1956. Stofan og borðstofan eru sérstaklega smekklega innréttaðar. Grái liturinn á veggjunum býr til hlýleika og rammar húsgögnin fallega inn.
Hver hlutur á sinn stað og fiskibeinaparketið á gólfunum setur svip á íbúðina. Í borðstofunni hittast svartir stólar við borðstofuborðið. Stólarnir koma hvor úr sinni áttinni og passa vel við PH-ljósið sem er fyrir ofan borðið.
Koparkúlan frá Tom Dixon prýðir stofuna og keyrir svolítið upp glamúr-stemninguna.