Vel skipulögð 92 fm íbúð

Við Reynimel í Reykjavík stendur afar hugguleg 92 fm íbúð á besta stað í Vesturbænum. Húsið sjálft var byggt 1966 og hefur verið vel hugsað um það.

Fjölskyldan sem býr í íbúðinni hefur búið sér fallegt heimili og á hver hlutur sinn stað. Íbúðin er hvítmáluð með parketi á gólfum.

Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innréttinga og kassalaga flísar á milli skápa. Á baðherberginu eru upprunalegar flísar sem skapa góða stemningu. 

Eldhús og stofa tengjast þó svo að eldhúsið sé ekki beint opið inn í stofu. 

Af fasteignavef mbl.is: Reynimelur 92

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál