Breytti skúrnum í íbúð fyrir soninn

Rakel Hrund Ágústsdóttir breytti bílskúrnum hjá sér í stúdíóíbúð og …
Rakel Hrund Ágústsdóttir breytti bílskúrnum hjá sér í stúdíóíbúð og þvottahús. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í 30 fermetra bílskúr í Breiðholtinu var lítið að frétta. Skúrinn var fullur af dóti sem aldrei var notað og því ákvað húseigandinn að breyta honum og nýta fermetra hússins betur í heild sinni. Rakel Hrund Ágústsdóttir lét hendur standa fram úr ermum og úr varð þessi fína vistarvera.

Þegar Rakel er spurð að því hvað þau hafi nákvæmlega gert við þennan 30 fm bílskúr segir hún að þau hafi raun gert skúrinn fokheldan.

„Við tókum hann alveg í gegn, gerðum hann fokheldan og rúmlega það. Upp kom leki þannig að við þurftum rífa vegg og steypa upp að nýju.Svo var hann innréttaður sem stúdíóíbúð og þvottahús,“ segir Rakel.

Bílskúrinn hjá Rakel var ekki alveg til fyrirmyndar og segir hún að flest dótið sem hún geymdi í honum hefði frekar átt heima í Sorpu en heima hjá henni.

„Við notuðum skúrinn fyrst og fremst sem geymslu eins og gengur og gerist. Í skúrnum safnaðist saman drasl og dót sem átti frekar heima á Sorpu,“ segir hún og hlær.


Í dag er ekkert drasl í skúrnum sem á heima í Sorpu heldur útbjuggu Rakel og fjölskylda hennar stúdíóíbúð í skúrnum ásamt þvottahúsi.  

„Skúrinn nýtist fullkomlega í dag. Fyrst og fremst er þarna stúdíóíbúð fyrir 22 ára son okkar  og tengdadóttur. Þau eru í Háskólanum í Reykjavík og finnst okkur yndislegt að geta boðið þeim aðstöðu hér. Svo færðum við þvottahúsið í skúrinn sem er algjör lúxus þar sem við vorum með svo lítið þvottahús áður,“ segir hún.

Hvað höfðuð þið í huga áður en þið fóruð út í þessar breytingar?

„Við vorum með þær hugmyndir að gera herbergi eða íbúð. Okkur vantaði rými fyrir yngsta barnið þannig að okkur fannst þetta vera góð lausn að færa elsta barnið út í skúr og yngsta í sérherbergi. Við vorum einnig með það í huga að færa þvottahúsið,“ segir Rakel.

Varstu með skýra hugmynd um hvað þú vildir gera?

„Já og nei. Ég var búin að fara marga hringi með þetta, ég fékk svo Sæju innanhússhönnuð til að hjálpa mér að setja hugsanir á blað og teikna þetta faglega upp. Við vorum einnig með frábæran smið með okkur í þessu.“

Þegar Rakel er spurð að því hvað hafi verið erfiðast við þetta verkefni segir hún að það hafi verið hvað það kom margt óvænt upp.

„Ætli það hafi ekki verið allt sem kom upp á framkvæmdatímanum. Eins og til dæmis leki sem tók tíma að staðsetja og svo þegar allt var að verða klárt fór hitalögn í gólfi. Þetta var erfiðast en með Óla smið með sér þá var þessu reddað á núll einni. Einnig má auðvitað segja öll smáatriðin sem auðvelt er að yfirsjást þegar hugmyndin er á teikniborðinu,“ segir hún.

Var þetta dýrt?

„Nei í sjálfu sér ekki. Þetta eru mjög verðmætir og góði fermetrar sem við fengum þó svo verkefnið hafi farið fram úr kostnaðaráætlun.“

Hvernig breyttist lífið við að fá þetta rými innréttað?

„Lífið breyttist svo sem ekki þannig, nema það er meira pláss fyrir okkur öll. Við erum alsæl með útkomuna og nýja aðstaðan gefur okkur margar hamingjueiningar,“ segir hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál