Risotto með chorizo og kjúkling

Risotto er magnað fyrirbæri. Rétt eins og með pasta er hægt að gera það í óteljandi útgáfum. Og þótt risotto sé með því (norður) ítalskasta sem hægt er að finna má vel nota spænsk hráefni á borð við chorizo-pylsur. Þetta er mjög bragðmikið risotto með rósmarín, chorizo, kjúkling og tómötum bökuðum í balsamikediki.

Fyrsta skrefið er að baka tómata. Við þurfum:

  • 1 askja litlir tómatar t.d. konfekt eða kirsuberja
  • 1 stöngull rósmarín
  • ólífuolía
  • balsamikedik
  • salt og pipar.

Setjið tómatana í fat. Saltið vel og piprið. Hellið vel af ólífuolíu yfir og skvettu af balsamikedik. Setjið rósmarínstöngulinn í fatið. Eldið við 200 gráður í um 20-30 mínútur. Geymið.

Á meðan tómatarnir eru í ofninum er risottoið undirbúið og eldað.

  • 500 g úrbeinuð kjúklingalæri (eða bringur)
  • 3 dl risotto-grjón (Arborio eða Carnaroli)
  • 100 g Chorizo, skorið í ræmur
  • 1  rauðlaukur (eða tveir litlir) fínsaxaður
  • 1 lúka saxað rósmarín
  • 4 hvítlauksrif
  • 50 g rifinn parmesan
  • 2 dl hvítvín
  • 1,2 l kjúklingasoð (eða vatn og kjúklingakraftur)
  • smjör
  • olía
  • salt og pipar

Byrjið á því að saxa lauk, chorizo, hvítlauk og rósmarín og skera kjúklinginn í minni bita. Hitið  nokkrar matskeiðar af ólífuolíu á pönnu og steikið laukinn, hvítlaukinn og saxað rósmarín í 4-5 mínútur á miðlungshita. Bætið þá chorizo og kjúklingi á pönnuna og steikið áfram þar til að kjúklingurinn hefur tekið á sig lit. Setjið þá grjónin út á og steikið áfram í 2-3 mínútur.

Hellið hvítvíni á pönnuna og látið malla aðeins. Byrjið þá að ausa kjúklingasoðinu (sem er gott að halda heitu í potti við hliðina á pönnunni). Byrjið á 2-3 þannig að soðið þekji grjónin að mestu og bætið síðan ausu og ausu við þar til að grjónin eru tilbúin. Það tekur um 18-20 mínútur. Bætið þá um matskeið af smjöri saman við, rifna parmesanostinum og tómötunum ásamt safanum sem hefur myndast í fatinu. (Það má líka blanda saman við t.d. fersku basil og frosnum baunum.) Leyfið að standa í um fimm mínútur. Berið fram.

Hér þarf svo auðvitað góðan Ítala með, t.d. toskanska rauðvínið Villa Antinori IGT

Uppskrift: vinotek.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert