Fullkominn eftirréttur

Ótrúlega girnilegur eftirréttur.
Ótrúlega girnilegur eftirréttur. Ljósmynd/Gulur Rauður Grænn og Salt

Heitur eplamulningur með hvítu súkkulaði er fljótgerður og auðveldur eftirréttur sem mun falla í kramið hjá súkkulaði- og ávaxtaunnendum en Berglind Guðmundsdóttir á heiðurinn að uppskriftinni.

Þetta þarf í uppskriftina:

  • 250 g stökkt múslí
  • 2 græn epli, afhýdd og skorin í teninga
  • 1 banani, skorinn í sneiðar
  • 100 g hvítir súkkulaðidropar
  • 100 g rjómasúkkulaði, skorið í bita
  • 1 msk. kanill
  • 2 msk. púðursykur
  • 100 g smjör

Blandið öllu saman og hellið í eldfast mót.
Bakið í 175°C í 30 mínútur.
Berið fram heitt með vanilluís eða rjóma.

Ekki flóknara en það!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert