Umkringd ljúffengum mat alla daga

Eirný Ósk Sigurðardóttir rekur osta- og ljúfmetisverslunina Búrið á Grandagarði. Eirný er mikill matgæðingur og er umvafin ljúffengum mat alla daga.

Nýlega bauð hún nokkrum góðum vinum sínum í mat sem öll deila með henni áhuga á mat og matargerð. Á boðstólnum kenndi ýmissa grasa. Eirný bauð meðal annars upp á ofnbakað grænmeti, nýbakað brauð, gómsæta osta, nauta-carpaccio og rabbabara- og möndlusoufflé.

Uppskriftirnar má nálgast í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem kemur út um helgina.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert