Marokkóskur kjúklingur með sveskjum og apríkósum

Réttir frá Marokkó byggja mikið á kryddum og oft eru þurrkaðir ávextir notaðir líka, t.d. sveskjur og apríkósur eins og hér. Réttinn má elda í svokallaðri “tagine” sem er eins konar panna með sívölu loki sem má setja inn í ofn.

Marinering

  • 1 laukur, saxaður
  • 4-5 hvítlauksgeirar
  • 1 lúka saxaður kóríander
  • 1 lúka söxuð steinselja
  • 1 tsk kanil
  • 1 tsk cummin
  • 1tsk kóríander
  • 1 tsk turmeric
  • 1/2 tsk cayenne
  • börkur og safi úr einni sítrónu
  • 1 msk fljótandi hunang

Blandið öllu saman í skál. Skerið um 600 g af beinlausum kjúkling (t.d. kjúklingalundir eða læri) niður í bita. Setjið í skálina með marineringunni, blandið vel saman og látið standa í um klukkustund.

Ávextir

  • 1 væn lúka sveskjur
  • 1 væn lúka þurrkaðar apríkósur
  • 1 tsk kanil

Setjið í pott og hellið vatni yfir. Ef þið eigið sérrí þá notið vatn og sérrí til helminga. Sjóðið á vægum hita í um hálftíma. Geymið.

Matreiðsla

  • 2 laukar, saxaðir
  • 1 tsk kanil
  • 1 msk kjúklingakraftur

Mýkið laukin í olíu ásamt kanil. Bætið kjúkling  ásamt marineringu saman við. Steikið kjúklinginn í nokrar mínútur. Bætið ávöxtum saman við ásamt vökvanum sem þeir voru soðnir í og blandið vel saman. Ef lítill vökvi er eftir þarf að setja smáksvettu af vatni út í. Blandið kjúklingakrafti saman við. Setjið í 200 gráðu heitan ofn og eldið í um 30 mínútur.

Berið fram með couscos eða tabbouleh couscous.

Fleiri spennandi marokkóskar og norður-afrískar uppskriftir finnið þið hér.

Uppskrift: vinotek.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert