Er þetta girnilegasta kaka í heimi?

Kökur geta ekki orðið mikið girnilegri en þetta.
Kökur geta ekki orðið mikið girnilegri en þetta. www.kevinandamanda.com

Þessi fáránlega girnilega kaka er aðeins fyrir allra mestu sælkerana þarna úti. Hérna eru hlutirnir teknir á næsta stig enda inniheldur kakan smákökudeig, oreo-kex og brownie-köku. Uppskriftin af þessari þriggja hæða snilld kemur af heimasíðunni KevinAndAmanda.com.

Hráefni:

Kökudeig

  • 1 bolli smjör, mjúkt
  • 1 bolli sykur
  • 3/4 bolli púðursykur
  • 2 stór egg
  • 1 matskeið vanilludropar
  • 2 1/2 bollar hveiti
  • 1 teskeið matarsódi
  • 1 teskeið salt
  • 2 bollar súkkulaðibitar

Miðjan
1 pakki Oreo-kex

Brownie-kaka
1 pakki Betty Crocker brownie-blanda +egg og olía (eftir leiðbeiningum á pakka)

Aðferð:

  1. Forhitaðu ofninn í 180°C. Settu bökunarpappír í stórt eldfast mót.
  2. Kökudeig: Blandaðu smjörinu, sykrinum og púðursykrinum saman með þeytara í tvær til þrjár mínútur. Bættu eggjum og vanilludropum saman við og hrærðu áfram. Í annarri skál, hrærðu hveiti, matasóda og salti saman. Sameinaðu þá innihald skálanna varlega. Hrærðu í deiginu með sleif og bættu súkkulaðibitunum út í deigið.
  3. Settu deigið í botn eldfasta mótsins. Raðaðu svo Oreo-kexinu ofan á kökudeigið. Útbúðu brownie-deigið samkvæmt leiðbeiningum umbúðanna. Helltu þá brownie-deiginu ofan á kökudeigið og oreo-kexið. Þá er kökunni skellt inn í ofn og hún bökuð í um 45-55 mínútur. Látið kökuna kólna alveg áður en hún er skorin niður í hæfilega stórar sneiðar.

Kakan bragðast vel með ís og heitri karamellu- eða súkkulaðisósu. Þetta gæti alveg eins verið girnilegasta kaka í heimi!

Kakan er á þremur hæðum.
Kakan er á þremur hæðum. www.kevinandamanda.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert