Grillað sumarsalat Valentínu

Grillað sumarsalat kætir bragðlaukana.
Grillað sumarsalat kætir bragðlaukana.

„Eitt af því sem ég elska að gera á sumrin er að rúnta um sveitina mína og ná mér í gott grænmeti frá grænmetisbændum sem selja beint frá býli,“ segir Valentína Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Móður náttúru, í sínum nýjasta pistli:

Um daginn fór ég á Engi í Laugarási. Þau eru með lífræna ræktun og rækta besta eggaldin sem ég hef fengið ásamt kúrbít og öllu hinu góðgætinu sem þau bjóða upp á. Sem betur fer er líka hægt að kaupa vörurnar þeirra hér í bænum.

Eftir síðustu heimsókn á Engi bjó ég til þetta góða salat ég má til með að deila uppskriftinni með ykkur. Það er afar einfalt að búa það til og hentar ágætlega eitt og sér sem létt máltíð.

Dressing

1 hvítlauksrif fínt saxað

5 msk. jómfrúar ólífuolía

safi úr 1 sítrónu

1 msk. gott balsamicedik

1 msk. söxuð minta

Öllu blandað saman í skál

olía til að pensla með

2 meðalstór eggaldin

1 kúrbítur

1 pk. strengjabaunir

gróft salt

svartur pipar

Sneiðið eggaldinið og stráið yfir sneiðarnar fínu salti og látið stand í ca 1 klst.

Skolið saltið af og þerrið eggaldinið vel. Þetta tekur remmuna úr eggaldininu.

Sneiðið kúrbítinn, grillið hann og eggaldinið. Penslið sneiðarnar með olíu.

Hellið sjóðandi heitu vatni á strengjabaunirnar og látið standa í 3 mínútur.

Raðið eggaldini og kúrbítssneiðunum á disk. Saxið strengjabaunirnar og stráið þeim yfir.

Hellið dressingunni yfir, saltið og piprið eftir smekk. Fallegt er að skreyta salatið með skjaldfléttu og basilblöðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert