Bestu matarsíðurnar á Instagram

Matarmyndir trollríða öllu á Instagram.
Matarmyndir trollríða öllu á Instagram.

Fallegur og girnilegur matur veitir bæði innblástur og gleður augað. Hérna koma þrjár Instagramsíður sem allir matgæðingar ættu að skoða og fylgjast með. Listinn birtist á vef Cosmopolitan.

New Fork City: Á þessari síðu birtast myndir af öllum besta matnum sem fæst í New York. Maður fær vatn í munninn. Það er algjörlega nauðsynlegt að skoða þetta áður en haldið er til New York-borgar.

New Fork City.
New Fork City.

Real Foodz: Á þessari síðu birtast myndir af girnilegum mat sem aðrir Instagramnotendur hafa tekið. Þetta er því samansafn af öllu því besta. Draumur allra sælkera.

RealFoodz.
RealFoodz.

Food in the Air: Mmmm, hérna er girnilegum mat haldið á lofti. Útkoman er myndir af gómsætum mat við fallegan bakgrunn og oftar en ekki er blár himinn í aðalhlutverki.

Food in the Air.
Food in the Air.

Hungry Betches: Þessi síða er rosaleg. Súkkulaði, bráðinn ostur, hnausþykkar samlokur, glassúr og svona mætti lengi telja. Ekki fyrir svanga að skoða!

Hungry Betches.
Hungry Betches.

Julie's Kitchen: Hérna er ferskleikinn í fyrirrúmi. Matarbloggarinn Julie er ekki aðeins listakokkur heldur tekur hún einstaklega fallegar myndir sem gaman er að skoða.

Julie's Kitchen.
Julie's Kitchen.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert