Einfaldir Oreo-ostakökubitar

Ostakökurnar gerast ekki mikið girnilegri.
Ostakökurnar gerast ekki mikið girnilegri. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

„Ótrúlega ljúffengir Oreo-ostakökubitar sem eru bæði einfaldir og fljótlegir í undirbúningi. Eins og flestar ostaköku eru þeir þó bestir vel kaldir þannig að þeir þurfa að vera dágóða stund í kæli áður en þeir eru bornir fram til að ná fullkomnun. Hér er á ferðinni algjört gúmmelaði sem klikkar ekki,“ segir Berglind Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt. 


36 Oreo-kexkökur, skipt niður
115 g smjör, skipt niður
4 pakkar Philadelphia-rjómaostur
200 g sykur
1 sýrður rjómi
1 tsk. vanilludropar
4 egg
200 g suðusúkkulaði

  1. Setjið álpappír í bökunarform á stærð við lasagnafat (eða notið hreinlega lasagnafat). Setjið 24 Oreo-kökur í matvinnsluvél og myljið niður, þó ekki of fínt (gott að láta vélina á pulse). Ef þið eigið ekki matvinnsluvél, setjið einfaldlega kökurnar í plastpoka, lokið pokanum og látið kökukefli eða hnefann dynja á kökunum (fínasta útrás).
  2. Bræðið helminginn af smjörinu og blandið saman við muldu Oreo-kökurnar. Setjið í botninn á bökunarforminu og þrýstið vel niður.
  3. Hrærið rjómaosti og sykri saman og bætið sýrða rjómanum og vanilludropum út í. Setjið egg út í, eitt í einu þar til það hefur blandast vel saman.
  4. Takið afganginn af Oreo-kökunum og grófsaxið þær og bætið saman við rjómaostablönduna. Hellið þessu síðan yfir Oreo-botninn.
  5. Setjið inn í 165°c heitan ofn í um 45 mínútur. Takið úr ofninum og leyfið að kólna í um 20 mínútur.
  6. Bræðið súkkulaðið og afganginn af smjörinu saman (ég nota örbylgjuofninn til þess) og dreifið yfir ostakökuna.

Geymið kökuna í kæli í amk. 4 tíma þar til hún er borin fram. Skerið í bita og njótið vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert