Klikkaðir hafraklattar

Hafraklattarnir hennar Berglindar líta vel út.
Hafraklattarnir hennar Berglindar líta vel út. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

„Ég hreinlega elska góðar hafraklatta og finnst ég einhvernveginn ná bakstri og hollustu í einu þegar ég geri þá. Auðvitað eru uppskriftirnar mishollar, nú eða góðar en þessi er í hollara lagi og bragðið er dásamlegt. Í þeim er ekki hveiti heldur haframjölshveiti sem ofureinfalt er að gera. Súkkulaðinu smá gjarnan skipta út fyrir rúsínur sé áhugi á því,“ segir Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt.


70 g haframjölshveiti (haframjöl eða tröllahafrar látið í matvinnsluvél þar til það líkist hveiti)
45 g tröllahafrar
25 g haframjöl
1 tsk lyftiduft
1 tsk kanill
klípa af salti
1 ½ tsk vanilludropar
1 stórt egg
4 msk púðursykur
120 ml kókosolía, fljótandi formi
50-100 g súkkulaðidropar(eða saxað súkkulaði)

  1. Gerið haframjölshveitið með því að láta haframjöl eða tröllahafra í matvinnsluvél eða blandara og vinna þar til áferðin líkist hveiti. Blandið haframjölshveitinu (mælt eftir að það er orðið að „hveiti“) tröllahöfrum, haframjöli, lyftidufti, kanil og salti saman í skál.
  2. Í aðrar skál skulu þið hræra saman vanilludropum, eggi og púðursykri. Blandið kókosolíunni (passið að hún sé ekki heit) saman við og blandið öllu vel saman.
  3. Bætið þurrefnunum saman við eggjahræruna og blandið lauslega saman. Bætið súkkulaðinu saman við.
  4. Hyljið deigið með plastfilmu eða viskustykki og leyfið að standa í um 30 mínútur í kæli eða þar til það er farið að harðna lítillega. Mótið kúlur úr deiginu og látið á ofnplötu með smjörpappír. Þrýstið aðeins á kúlurnar.
  5. Setjið í 175°c heitan ofn í um 8-10 mínútur eða þar til þær hafa brúnast örlítið.
    Takið úr ofninum og kælið lítillegar áður en þeirra er notið.
Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert