Bestu matarbloggin 2015

Af bloggi Molly Yeh.
Af bloggi Molly Yeh.

Eru matreiðslubækur á útleið og matarbloggin að taka yfir eða ýta netsíðurnar undir enn frekari sölu á matreiðslubókum? Finna má orðið nærri því hvað sem er á netinu og er alls enginn skortur á ráðleggingum, leiðbeiningum og bloggi um mat og matarmenningu. Reyndar er svo mikið fjallað um mat og vín á netinu að ekki gefst tími til að kynna sér nema brotabrot af því sem í boði er. Tímaritið Saveur gefur sér þó árlega tíma til að taka saman bestu og vinsælustu matarblogg heims og er vert að skoða helstu verðlaunaflokka tímaritsins.

Eftirréttir og bakstur

Fyrir bakstur og eftirrétti fékk bloggarinn Yossy Arefi fyrstu verðlaun tímaritsins en hún kallar blogg sitt Apt. 2B – Baking co. og hefur netslóðina www.apt2bbakingco.com. Lesendur síðunnar ættu ekki að vera lengi að átta sig á því af hverju hún hefur fengið verðlaun fyrir bakstur og eftirrétti en auðvelt er að gleyma sér í uppskriftum og ekki síst við að dást að myndum hennar af matnum.
Yossy Arefi hefur fengið endalaus verðlaun fyrir uppskriftir sínar.
Yossy Arefi hefur fengið endalaus verðlaun fyrir uppskriftir sínar.

Matur og ferðalög

Elizabeth Minchilli hefur kannski eitt besta starf í heiminum. Hún vinnur við það að ferðast um og skrifa um mat og heimili fólks. Hún sneri sér síðan að netinu og hefur verið óstöðvandi í að blogga um mat, menningu og ferðamannastaði síðan 2009.

Það er engin furða að síðan hennar hafi orðið fyrir valinu hjá lesendum Saveur enda býður hún upp á dagsferðir, matarferðir, blogg, uppskriftir og setur inn skemmtileg myndbönd á síðuna sína auk þess að birta skemmtilegar myndir, sem kveikja í bragðlaukunum. Þeir sem langar að kynnast blogginu hennar Minchilli geta farið á slóðina www.elizabethminchilliinrome.com

Frumleiki í bjórblogginu

Saveur velur heldur óvenjulega síðu til verðlauna fyrir bjórblogg. Síðan sem varð fyrir valinu heitir Pints and Panels og setur allt efni sitt fram í formi teiknimyndasögu. Það er teiknarinn Em sem heldur utan um síðuna. Nálgun hennar að viðfangsefninu er mjög skemmtileg og frumleg. Flestir sjá kannski fyrir sér rómaðar myndir af bjórflösku eða bjór í glasi í fallegu umhverfi en á Pints and Panels er því öllu sleppt. Umfjöllunin er einföld, góð og skemmtileg. Hægt er að sjá síðuna á netfanginu www.pintsandpanels.com og er vel þess virði að heimsækja.
Mynd af bloggi Elizabeth Minchilli.
Mynd af bloggi Elizabeth Minchilli.
Sú sem toppar allt
Að mati Saveur er matarblogg Molly Yeh besta blogg ársins 2015. Hér er á ferðinni ung stelpa sem skrifar um líf sitt og ferðalög, lífið á búgarði í Bandaríkjunum og matinn sem hún eldar og borðar.

Virkilega skemmtileg síða sem býður upp á margar góðar uppskriftir þar sem blandað er saman asískri og amerískri matargerð. Bloggið er persónulegt og það gerir það að verkum að auðvelt er að gleyma sér á síðunni. Þeir sem vilja heimsækja verðlaunabloggið geta slegið inn slóðina www.mynameisyeh.com.

Af bloggi Molly Yeh. Hér var hún að baka kleinuhringi.
Af bloggi Molly Yeh. Hér var hún að baka kleinuhringi.

Klassískir drykkir í öllum litum

Besta kokteilsíðan var að þessu sinni Two For The Bar en síðan er skemmtilega klassísk í útliti og býður lesendum sínum upp á reglulega drykki dagsins eða mix. Síðan ætti að vera á lista allra áhugamanna um gott áfengi og áfenga drykki. Veistu hvernig á að gera Piña Colada? Ef ekki þá hefur síðan Two For The Bar svarið fyrir þig.

Hér eru myndir og umfjöllun öllu hefðbundnari en hjá vinningshafa bjórbloggsins en engu að síður er síðan skemmtilega uppsett og full af fróðleik. Þeir sem vilja kynna sér síðuna sjálfir geta sótt lénið www.twoforthebar.ca.

Two For The Bar er skemmtilegasta kokkteilsíðan.
Two For The Bar er skemmtilegasta kokkteilsíðan.
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert