Margarita í hollari kantinum

Þessi margarita er stútfull af girnilegum sítrusávöxtum.
Þessi margarita er stútfull af girnilegum sítrusávöxtum. Skjáskot Mindbodygreen

Höfum við ekki flest gaman að því að fá okkur eins og einn kokteil, eða tvo. Til þess að friða samviskuna er tilvalið að hollustuvæða kokteilinn örlítið.

Agave margarita

3 súraldin (e. lime)

1 lítil appelsína, skorin í fernt

¼ bolli (60 ml.) tequila

1 mtsk. agave-síróp

Ísmolar

Leiðbeiningar:

Skerið súraldinin í fjóra hluta og setjið í krukku eða kokteil-hristara ásamt appelsínubátunum.

Bætið áfenginu, og agave-sírópinu, út í og merjið ávextina saman við.

Setjið ísmola í glas og hellið drykknum yfir, ef þið viljið getið þið síað ávextina frá.

Drekkið og njótið.

Uppskrift er fengin á Mindbodygreen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert