c

Pistlar:

18. apríl 2023 kl. 8:50

Guðrún Arnalds (gudrundarshan.blog.is)

Birta

 

Jógaheimspekin býr yfir hugtakinu Sattva sem er einn af þremur eiginleikum lífsins. Sattva merkir ljós eða léttleiki. Birta. Önnur orð sem túlka sattva eru samhljómur, tærleiki, sköpun, jákvæðni og friðsæld. Í jóga viljum við næra Sattva og kveikja ljósflæðið í okkur. 

Hinir tveir eiginleikarnir eru Rajas og Tamas. Rajas er drifkraftur hreyfingar, virkni og ástríðu. Tamas stendur fyrir sinnuleysi, deyfð og óreiðu. Tamas og Rajas eiga sér líka sinn stað í tilverunni. Allt líf er blanda af þessum þremur eiginleikum, samkvæmt jógaheimspekinni. Gott líf byggir á góðu jafnvægi þeirra. Jafnvægi er meðal annars fólgið í því að sökkva ekki of djúpt í Tamas því þá verður svo mikið átak að lyfta okkur upp aftur. 
 
Á þessum árstíma er oft búið að safnast fyrir mikið af Tamas í okkur. Veturinn og myrkrið gera okkur þung og værukær. Þegar vorið er handan við hornið getur verið átak að finna kraft og tilgang í tilverunni. Orkuflæðið er hægt í gang og við fáum frekar kvef og alls kyns stíflur. Við náum stundum ekki að taka á móti allri birtunni af heilum hug þar sem veturinn hangir enn í okkur og við erum orðin svo vön vetrarkápunni. 
 
Til að finna Sattva; tærleika og friðsæld, þurfum við að byrja þar sem við erum. Við þurfum að ferðast í gegn um Rajas. Að hreyfa okkur til að finna kraftinn og eldinn innra með okkur. Að teygja á líkamanum og finna okkar eigin takt og fá þannig útrás fyrir staðnað orkuflæðið. Við þurfum að hlusta á þyngslin og gefa þeim færi á að finna sinn farveg. Þá fyrst getum við kveikt ljós og fundið friðsæld. 
 
Jóga hjálpar okkur að finna þennan stað í okkur sem þráir lífið, sem elskar að vera til, sem skýtur út grænum sprotum af lífsorku. Í kundalini jóga iðkum við meðvitaða hreyfingu í takti við andardráttinn. Smátt og smátt kyrrast hugurinn og lífið verður bjartara. Jógaiðkun opnar fyrir löngun til að lifa ferskara og innihaldsríkara lífi. Og lífsstíll okkar og mataræði geta á sama hátt stutt við jógaiðkunina. 

Guðrún Arnalds, jógakennari, hómópati og leiðbeinandi í Fókusing, aðferð til að hlusta á visku líkamans.

Andartak jóga- og heilsustöð

andartak@andartak.is

Guðrún Arnalds

Guðrún Arnalds

Guðrún Arnalds starfar sem jógakennari, markþjálfi og leiðbeinandi í Fókusing - aðferð til að hlusta á líkamann og sína innri veröld. Hún rekur jóga- og heilsustöðina Andartak. Hún hefur starfað við heildræna heilsu í 30 ár og kennt jóga í 20 ár og hefur viðað að sér þekkingu og reynslu á þessum sviðum og á öðru því sem snýr að þroskaferðalagi manneskjunnar. 

www.andartak.is

Meira