c

Pistlar:

16. júní 2013 kl. 9:12

Marta María Jónasdóttir (martamaria.blog.is)

Í sama vítahring og Óttar Proppé

Sumarið 2013 var ég búin að sjá í hyllingum. Markmiðið var að flytja lögheimilið í Sundhöll Reykjavíkur þar sem ég ætlaði að flatmaga með sólarvörn, auðga andann með kiljulestri og auka ytri fegurð með því að skjóta á mig engiferskotum eins og enginn væri morgundagurinn. Þess á milli ætlaði ég að hjóla í vinnuna, berleggjuð í kjól, eins og maður gerir yfir sumartímann (allavega þegar allt er eðlilegt).

Eitt besta spariguggutrixið í þessu veðurfari er án efa blessuð augnháralengingin. Alvöru augnháralenging er framkvæmd á viðurkenndum snyrtistofum en þar límir snyrtifræðingurinn gerviaugnhár við hvert einasta augnhár sem bæði þykkir og lengir okkar eigin augnhár.

Ég ætla nú ekki að vera með neinn áróður en ég mæli ekki með því að konur láti gera þetta í heimahúsum. Það er nefnilega með þetta eins og svo margt annað í lífinu að það er betra að sleppa þessu en að láta gera þetta illa. Ég hef séð með eigin augum illa leikin augnhár eftir heimaæfingar amatöra. Það er nákvæmlega ekkert smart við það.

Augnháralengingin er dálítið eins og himnasending í tíð sem þessari, þar sem rignir og rignir. Hún er líka góð fyrir sunddrottningar sem vilja vera töff í lauginni (eða heita pottinum) og auðvitað fyrir þær sem eiga það til að fella tár við og við. Konur með augnháralengingar þurfa nefnilega aldrei að hafa áhyggjur af því að maskarinn sé að leka niður á kinnar eða sé farinn að klínast við augabrúnirnar. Í hinu margbrotna lífi konunnar getur það verið lífsnauðsynlegt. Auk þess getur lífið kallað á þær aðstæður að konan þurfi sérstaklega á því að halda að vakna ekki eins og Grýla, heldur eins og Sophia Loren (þegar hún var upp á sitt besta). Konur með augnháralengingar eru alltaf eins og frú Loren, alla daga ársins, allan sólarhringinn ...

Konur með augnháralengingar spara auk þess heilmikinn tíma því þær þurfa ekki að mála sig jafnmikið um augun og hinar. Þetta kallar ekki á prófgráðu í bananaskyggingu og eyeliner-fræðum. Í versta falli er settur örlítill blýantur í kringum augun til að ramma inn augnsvæðið og gera það þokkafyllra.

Það tekur reyndar í kringum tvo klukkutíma að fá augnháralengingu í fyrsta skipti en eftir það þarf að lagfæra augnhárin á nokkurra vikna fresti og þá tekur það í kringum klukkutíma.

Og nú kemur játning. Ég er búin að vera með augnháralengingu svipað lengi og Óttar Proppé er búinn að vera með aflitað hár. Við erum í sama vítahringnum, einu sinni byrjað – þú getur ekki hætt! Það alversta af öllu er að geta ekki gert neitt á meðan augnhárin eru fixuð. Í þennan klukkutíma get ég ekki verið andlega fjarverandi eins og alla hina dagana – allan ársins hring.

Það getur tekið á ...