c

Pistlar:

28. júlí 2014 kl. 10:41

Marta María Jónasdóttir (martamaria.blog.is)

Þarftu veðurfarslega áhættustýringu?

Íslenska framsóknarsumrið heldur sínu striki og ef allt fer sem horfir verða næstu tvö sumur eins eða jafnvel lengur. Það fer allt eftir því hver úrslit kosninganna verða 2017. Þeir sem ætla að halda áfram að væla yfir vætunni ættu að setja næsta sumarleyfi í veðurfarslega áhættustýringu ...

Það hvarflar stundum að mér að þeir sem röfli mikið yfir veðrinu séu kannski ekki staddir alveg á nógu góðum stað. Líf þeirra sé ekki nógu innihaldsríkt og jafnvel tilbreytingasnautt á köflum. Þeir sem eru í ljósinu og leggja sig fram við að hafa tilveruna sína nokkuð góða og fallega taka yfirleitt ekki eftir því hvernig viðrar – því lífið stendur og fellur ekki með veðurfarinu. Það eru aðrir hlutir í lífinu sem hafa meiri vigt og stýra því hvort hamingjan elti okkur á röndum eða ekki. Lífið getur nefnilega alveg verið sólarströnd þótti úti rigni.

Ég er hluti af þeim hressa hóp sem hreinlega elskar sólina. Það má ekki sjást sólarglæta á himni þá er ég rokin í sund, en um leið er ég mjög meðvituð um skaðsemi sólarinnar. Ef einhver hefði sagt við mig fyrir tíu árum að ég yrði farin að bera á mig 50 SPF fyrir fertugt þá hefði ég haldið að viðkomandi væri eitthvað veikur. Eftir að hafa upplifað mátt sólarinnar og hvað hún getur haft skaðleg áhrif á húðina þorir maður ekki annað en að vera alltaf með vörn. Það er lítill sjarmi yfir því að verða eins og gamall leðursófi í framan ...

Þegar stelpur eru komnar á minn aldur er ekki hægt að fela fyrri lífsstíl. Það er mjög auðvelt að sjá hvort þær hafi legið mikið í ljósum eða verið mikið á baðströndum á sínum sokkabandsárum. Þið getið ímyndað ykkur hvað er vont að fatta það núna. Af hverju sagði okkur þetta enginn á sólbaðsstofuárunum? (Það vann önnur hver Gugga á sólbaðsstofu ... líka ég).

Ég er mjög meðvituð um að vandaðar stúlkur eiga nú ekki að vera að ræða um útlit sitt í tíma og ótíma og alls ekki vera með það á heilanum. En ég veit bara ekki um neina stelpu sem langar að líta út fyrir að vera eldri en hún er (nema hún sé 17 ára og þurfi að komast í Ríkið).

Það eru þó alveg nokkrar jákvæðar hliðar á sólarleysi. Ég er nú ekki búin að taka saman hvað vísitölufjölskyldan getur sparað háar fjárhæðir á rigningunni en fyrir þá sem eru vanir að fjárfesta svolítið í nýjum sumarfötum þá getur þetta munað töluverðu í heimilisbókhaldinu fyrir utan hvað maður sparar mikla peninga á að kaupa ekki grillolíu, kol eða gas.

Maður hefur bara alls ekki þurft að kaupa sér neina lekkera sumarkjóla, engar stuttbuxur og enga hlýraboli. Ég druslaðist reyndar til að kaupa mér sandala í byrjun sumars sem voru án efa mistök. En þeir eru nú svo góðir í sniðinu að ég gæti jafnvel notað þá sem inniskó þegar ég fer á Hrafnistu ef veðurfarið verður svona þangað til. Ég meina, fyllti hællinn á þeim er ekki svo hár. Í stað þess að spranga um berleggjaður í ermalausum bol og sandölum hefur maður varla farið úr háu leðurstígvélunum, sokkabuxunum og ullarjakkanum. Og ég er alls ekki að kvarta. Ef það má setja eitthvað út á rigninguna þá er það helst hvað hún á það til að rústa blásnu hári mikið. En þá er nú bara um að gera að setja hárið í snúð – þá má rigna fyrir allan peninginn án þess að greiðslan fari úr skorðum.

En það er nú ekki eins og ævintýrin gerist bara á björtum sumarnóttum því ævintýrin geta líka bankað uppá í rigningu. Í stað þess að spranga um berleggjuð um miðbæ Reykjavíkur og tanað mig í drasl í sundi hef ég í sumar prófað að rigna nánast niður með gorítexklæddum skeggjuðum svarthærðum manni á Þingvöllum, labbað Reynisfjöruna hönd í hönd í rigningu, látið lesa fyrir mig og lesið sjálf staflana af íslenskum skáldverkum, horft á nokkrar skemmtilegar bíómyndir, látið klóra mér á bakinu og notið þess að gera allt sem hægt er að gera inni á heimili þegar veðrið er ekki sérlega útivistarvænt ... Er hægt að kvarta eitthvað yfir því?