Það var allt á yfirsnúningi í Þjóðleikhúskjallaranum í gærkvöldi þegar Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar hélt sína árlegu herratískusýningu. Það vantaði ekki stuðið og stemninguna en hljómsveitin Hr. Ingi R spilaði undir tískusýningunni. Söngvarinn Megas tók lagið og það gerðu líka Þrjár basískar. Jakob Smári Magnússon tók bassajólalag og Björn Stefánsson tók lag með Mick Jagger.
Rúsínan í pylsuendanum var fullorðinsatriði Margrétar Erlu Maack og Saga Garðarsdóttir fékk gesti til að hlæja með uppistandi sínu. Og svo kom Lalli töframaður.
Ragnar Ísleifur Bragason var sögumaður tískusýningar og svo má ekki gleyma karlfyrirsætum kvöldsins en þar voru Böðvar Guðjónsson, Aron Bergmann, Eysteinn Sigurðarson, Hilmar Guðjónsson og Vignir Rafn Valþórsson í aðalhlutverki.