Hönnunarfyrirtækið Kolibri sem sérhæfir sig í hugbúnaðarnýsköpun hélt sitt árlega síðsumarpartí á föstudaginn. Teitið fór fram í húsakynnum fyrirtækisins á Laugavegi en á skrifstofunum eru svalir með útsýni yfir hálfa Reykjavík, Esjuna og Snæfellsjökul ef út í það er farið.
Hollustan var í fyrrirúmi en það var boðið upp á nýupptekið grænmeti af ýmsum toga og var því skolað niður með hressandi langdrykkjum og bjór.
Eins og sést á myndunum leiddist ekki nokkrum lifandi manni í teitinu.