Unnsteinn reif upp stemninguna

Gestum var boðið upp á frískandi prosecco.
Gestum var boðið upp á frískandi prosecco. Samsett mynd

Landsþekkti tónlistar- og sjónvarpsmaðurinn, Unnstein Manuel Stefánsson og Hermigervill settu tóninn fyrir hinn árlega viðburð í umsjón KLAK - Icelandic Startups, Prosecco & Pitch, sem fram fór mánudaginn 25. mars í Grósku hugmyndahúsi.

Þau níu sprotafyrirtæki sem taka þátt í Hringiðu í ár kynntu verkefni sín en Jenna Björk Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Hringiðu opnaði viðburðinn og bauð öll velkomin við mikinn fögnuð viðstaddra. 

Mikil spenna og eftirvænting

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ávarpaði frumkvöðlana, sprota og gesti og hvatti þátttakendur í Hringiðu áfram á þeirra vegferð.

Það ríkti mikil spenna og eftirvæntingin var áþreifanleg þegar einna mínútu kynningar þátttakenda hófust. Artic Fibers, Circula, Ekkó, Flöff - textílvinnsla, Í djúpum, Ró, Seagrowth, Velja og Visttorg hafa unnið hörðum höndum að því að koma lausnum sínum, sem raunverulega leysa aðsteðjandi úrlausnarefni í umhverfismálum, í góðan farveg. 

„Íslenska sprotasenan skemmti sér mjög vel og fyllti rýmið fyrir framan hinn fræga gróðurvegg Grósku. Við teljum að yfir 120 manns hafi mætt til að fá sér prosecco fyrir páskafríið og sjá þátttakendur fara með einna mínútu kynningar. Ég er mjög ánægð með hvernig til tókst en fyrir utan kynningar sprotanna var hvetjandi og skemmtilegt að hlusta á Guðlaug Þór Þórðarson, ráðherra.

Við þökkum bakhjörlunum og samstarfsaðilum sérstaklega fyrir því án þeirra aðkomu væri ekki hægt að keyra viðskiptahraðal eins og Hringiðu. Við hlökkum til áframhaldandi samvinnu næstu vikurnar í Hringiðu en fjárfestadagur Hringiðu er 2. maí.” segir Jenna Björk Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Hringiðu.

Jenna Björk Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Hringiðu.
Jenna Björk Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Hringiðu. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

Með verðmætasköpun að leiðarljósi

Umsjón með Hringiðu hraðlinum, sem keyrður er í fjórða sinn í ár, er í höndum KLAK – Icelandic Startups sem hefur til fjölda ára veitt aðstoð við þróun viðskiptahugmynda og leitt saman hóp hagaðila með verðmætasköpun að leiðarljósi.

Bakhjarlar Hringiðu eru Reykjavíkurborg, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Orkuveitan, Faxaflóahafnir, Terra, Ölgerðin og Samtök iðnaðarins. Samstarfsaðilar Hringiðu eru Hringrásarklasinn, Rannís, Breið þróunarfélag, Evris, Sjávarklasinn, Orkuklasinn, F6S, Hugverkastofa og Grænvangur.

Guðlaugur Þór Þórðarson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Bryndís Mjöll …
Guðlaugur Þór Þórðarson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Bryndís Mjöll Gunnarsdóttir. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Frumkvöðlar, sprotar og gestir á Prosecco Pitch voru í miklu …
Frumkvöðlar, sprotar og gestir á Prosecco Pitch voru í miklu stuði. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Gestir gæddu sér á Prosecco.
Gestir gæddu sér á Prosecco. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Unnsteinn Manuel Stefánsson og Hermigervill skemmtu gestum.
Unnsteinn Manuel Stefánsson og Hermigervill skemmtu gestum. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Guðlaugur Þór Þórðarson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ávarpaði gesti.
Guðlaugur Þór Þórðarson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ávarpaði gesti. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Frumkvöðlar á Prosecco Pitch.
Frumkvöðlar á Prosecco Pitch. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Magnús Daði Eyjólfsson, Jenna Björk Guðmundsdóttir verkefnastjóri Hringiðu, Anna Schalk …
Magnús Daði Eyjólfsson, Jenna Björk Guðmundsdóttir verkefnastjóri Hringiðu, Anna Schalk Sóleyjardóttir og Ólöf Kristrún Pétursdóttir Blöndal hjá KLAK - Icelandic Startups. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Smári Jósafatsson hjá Ekkó.
Smári Jósafatsson hjá Ekkó. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Hringiða - Birgitta Ásgrímsdóttir hjá SEAGROWTH.
Hringiða - Birgitta Ásgrímsdóttir hjá SEAGROWTH. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Bala Kamallakharan, fjárfestir og framkvæmdastjóri Startup Iceland, ásamt frumkvöðlum.
Bala Kamallakharan, fjárfestir og framkvæmdastjóri Startup Iceland, ásamt frumkvöðlum. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Begga Rist hjá Í djúpum.
Begga Rist hjá Í djúpum. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Gestir á góðri stundu.
Gestir á góðri stundu. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Það var mikið líf og fjör.
Það var mikið líf og fjör. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir, Sigríður Tryggvadóttir, Sæunn Kjartansdóttir, Margrét Katrín Guttormsdóttir …
Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir, Sigríður Tryggvadóttir, Sæunn Kjartansdóttir, Margrét Katrín Guttormsdóttir hjá Flöff - textílvinnslu. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Sprotar í Hringiðu.
Sprotar í Hringiðu. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Anna Schalk Sóleyjardóttir starfsnemi hjá KLAK og Guðrún Jónsdóttir.
Anna Schalk Sóleyjardóttir starfsnemi hjá KLAK og Guðrún Jónsdóttir. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Unnsteinn og Hermigervill.
Unnsteinn og Hermigervill. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Alice Sowa hjá Arctic Fabric.
Alice Sowa hjá Arctic Fabric. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Birna Sigrún Hallsdóttir hjá Himinn og haf.
Birna Sigrún Hallsdóttir hjá Himinn og haf. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Arna Sigrún Haraldsdóttir og Luke Hening hjá VELJA.
Arna Sigrún Haraldsdóttir og Luke Hening hjá VELJA. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Litten Nystrøm og Haraldur Karlsson hjá Ró.
Litten Nystrøm og Haraldur Karlsson hjá Ró. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál