Kim Kardashian er með tvo einkaþjálfara

Kim Kardashian ætlar að vera orðin allt of mjó þegar …
Kim Kardashian ætlar að vera orðin allt of mjó þegar hún giftir sig. PAUL HACKETT

Brúðkaupsundirbúningur er á fullu hjá Kim Kardashian og nú hamast hún eins og enginn sé morgundagurinn í ræktinni.

Ungfrú Kardashian ætlar að giftast unnusta sínum, Kris Humphries, í lok sumarsins og er öllu til tjaldað. Hún ætlar ekki að klæðast neinum lörfum því Veru Wang brúðarkjóllinn bíður eftir henni. 

Til þess að vera sem kynþokkafyllst á sjálfan brúðkaupsdaginn hefur hún sett sérstaklega mikinn kraft í líkamsræktina. 

Heimildarmaður sagði í samtali við  more! tímaritið að hún væri tryllt í ræktinni.

„Hún æfir minnst tvisvar á dag, stundum oftar,  og er með tvo einkaþjálfara.“

Ungfrú Kardashian er þekkt fyrir fallegan klæðaburð og segir heimildarmaðurinn að hún muni skarta að minnsta kosti þremur kjólum á brúðkaupsdaginn. 

Þetta brúðkaup verður án efa eitt af brúðkaupum ársins. Stjörnur á borð við Beyoncé, Jay-z og Justin Bieber eru búin að boða komu sína svo einhverjir séu nefndir. 

Kim Kardashian.
Kim Kardashian. PAUL HACKETT
Kim Kardashian.
Kim Kardashian. PAUL HACKETT
Kim Kardashian.
Kim Kardashian. PAUL HACKETT
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál