Klöguð fyrir að bera brjóstin

Charlize Theron.
Charlize Theron. mbl.is/Cover Media

Neyðarlegasta uppákoman í lífi Charlize Theron er henni enn í fersku minni enda þótt nokkuð sé um liðið. Leikkonunni tókst óviljandi að særa blygðunarkennd konu nokkurrar sem gekk inn á hana á hótelbaðherbergi þar sem hún var að hagræða kjólnum. Konunni var mikið brugðið, rauk á dyr og klagaði Theron til öryggisvarða hótelsins fyrir að bera brjóstin á almannafæri.

Í viðtali við Total Film kveðst Theron hafa eldroðnað enda atvikið það neyðarlegasta sem hún hafi lent í um ævina. Samkvæmt frásögn leikkonunnar var hún stödd á umræddu hóteli ásamt fleira fólki og skrapp inn á baðherbergi með förðunarmeistara sínum, Shane, til að athuga hvort útlitið væri ekki í lagi. Hún þurfti að lagfæra kjólinn og á sama augnabliki gekk kona inn á baðherbergið sem var stórlega misboðið. Konan æpti upp yfir sig og rauk beint til öryggisvarða hótelsins og klagaði atvikið en Theron stóð eftir eins og illa gerður hlutur, eldrauð í framan.

Leikkonan segist hafa tekið atvikið mjög nærri sér en eðli málsins samkvæmt urðu engir eftirmálar enda um óviljaverk að ræða.

Charlize Theron.
Charlize Theron. mbl.is/Cover Media
Charlize Theron vakti athygli í kjólnum.
Charlize Theron vakti athygli í kjólnum. BRIAN SNYDER
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál