Allt of mjó og lítur illa út

Mynd 1 af 4
Demi Moore í dag og í fyrra. Miðjumyndin er frá því í fyrra en hinar eru splunkunýjar. mbl.is/Samsett mynd

Leikkonan Demi Moore er undrandi á því að fólki finnist hún vera of grönn. Hún bjóst aldrei við því að verða í þeirri stöðu. Árið 2011 var erfitt ár hjá leikkonunni, sér í lagi þegar kom í ljós að eiginmaður hennar, Ashton Kutcher, hafði haldið framhjá henni á sex ára brúðkaupsafmæli þeirra.

Í framhaldinu skildu þau og í kjölfar þess grenntist Moore töluvert. Stjarnan segist ekki taka gagnrýnina nærri sér og segist hafa það gott. Hún ræddi þessi mál við Harper´s Bazaar.

„Fólk sagði við mig að ég væri allt of mjó og liti ekki vel út. Ég hélt ég myndi aldrei lenda í því,“ sagði í Moore í viðtali við blaðið. Hún játaði að hafa haft lélegt sjálfstraust á sínum yngri árum og hafa haft miklar áhyggjur af útliti sínu. Í dag væri hún hinsvegar sátt við sig.

„Ég hef átt í ástar- og haturssambandi við líkama minn. Ég hef oft verið á skjön við hann og hann hefur látið illa að stjórn. Ég átti í erfiðleikum með þyngdina og fékk það á tilfinningu að ég gæti ekki borðað það sem mig langaði í. Þetta olli mikilli togstreitu.“

Skilnað hennar og Ashton Kutcher ber á góma. Hún segist þurfa að hafa skipulag á lífi sínu og það sé erfitt fyrir hana að hafa allt í upplausn.

„Það hræðir mig mest að vita ekki allt og ég verð alltaf að hafa stjórn á hlutunum. Ég verð óörugg þegar ég er ekki með allt á hreinu og get ekki treyst því að mér sé sagt satt.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Röddin í góðu formi eftir fæðinguna

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
Í gær, 13:00 Óperusöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir lifir sannkölluðu heimsborgaralífi úti í Madrid, og þar er daglegt líf allt annað en hversdagslegt. Meira »

Trúlofuð rokkara

Keira Knightley ætlar að giftast rokkara.
í fyrradag Keira Knightley og James Righton ætla að ganga í hjónaband.  Meira »

Hundarnir á bakvakt

Charlize Theron á hjálpsama hunda.
í fyrradag Charlize Theron fær hjálp við barnauppeldið úr óvæntri átt.  Meira »

Í innilegu sambandi við ömmu

Vilhjálmur Bretaprins.
í fyrradag Vilhjálmur Bretaprins og Elísabet Bretadrottning eru nánir vinir.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is