Byrjaði 14 ára á pillunni

Kim Kardashian var 14 ára gömul þegar hún byrjaði að taka pilluna og naut hún dyggrar aðstoðar móður sinnar, Kris Jenner, sem útvegaði henni lyfseðil án þess að hugsa sig um tvisvar.

Veruleikastjarnan greindi frá þessu og fyrstu kynlífsreynslu sinni í spjallþætti Oprah Winfrey, Oprah’s Next Chapter, á sjónvarpsstöð hennar OWN á sunnudagskvöld.

„Ég var 14 ára gömul og hafði átt sama kærastann í tvö ár,“ sagði Kardashian í spjalli sínu við sjónvarpsdrottninguna.

„Mig langaði til að byrja að stunda kynlíf og sagði mömmu frá því. Hún tók vel í hugmyndina og svaraði strax: Þá byrjar þú að taka pilluna.“

Fréttin kom Oprah greinilega í opna skjöldu, sem er þó alvön því að gestir hennar tjái sig frjálslega um einkalíf sitt.

Var hún svo undrandi að henni láðist að fylgja málinu eftir og vatt sér hratt að næstu spurningu, sem sneri að allt öðru.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál