Vísindakirkjan olli vinslitum Holmes og Beckham

Katie Holmes og Viktoría Beckham voru áður bestu vinkonur en þær kynntust í gegnum eiginmenn sína, Tom Cruise og David Beckham, og sáust þau öll fjögur oft saman opinberlega. Fyrir fjórum árum varð snöggur endir á vinskapnum og fullyrtu fjölmiðlar að ástæðan að baki væri sú að Beckham-hjónunum geðjaðist ekki að tengslum Cruise við Vísindakirkjuna.

Katie og Viktoría hafa ekki sést saman um langt skeið og virðast ekki vera í neinum samskiptum en nú þegar leikkonan er skilin við Cruise er komin upp ný staða í málinu. Má leiða að því getum að fyrrverandi vinkonurnar muni taka upp þráðinn að nýju, nú þegar Vísindakirkjan stendur ekki lengur í vegi fyrir þeim.

Víst er að fatahönnuðirnir Katie Holmes og Viktoría Beckham muni í síðasta lagi hittast á Tískuvikunni í New York í september, þegar leikkonan kynnir þar í fyrsta sinn tískulínu sína Holmes & Yang.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál