Egill og Tinna eignast fjórða barnabarnið

Tinna Gunnlaugsdóttir og Egill Ólafsson.
Tinna Gunnlaugsdóttir og Egill Ólafsson. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Egill Ólafsson og Tinna Gunnlaugsdóttir eignuðust sitt fjórða barnabarn í dag þegar dóttir þeirra, Ellen Erla, eignaðist frumburð sinn. 

„Ellen Erla, dóttir mín, og Anton Þórarinsson eignuðust dóttur í dag, 15. október, á afmælisdegi Herdísar Þorvaldsdóttur, ömmu Ellenar. Þau hafa tekið að sér að skapa enn eitt undrið og heimurinn fagnar,“ sagði Egill á facebooksíðu sinni. 

Stúlkan er fjórða barnabarn þeirra Egils og Tinnu en synir þeirra tveir eiga báðir börn. Ólafur Egill Egilsson leikari á son og dóttur með konu sinni Esther Thalíu Casey leikkonu og Gunnlaugur Egilsson ballettdansari á dóttur með unnustu sinni, Gunni von Matérn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál