Ásgeir Kolbeins trúlofaður

Bryndís Hera Gísladóttir og Ásgeir Kolbeinsson.
Bryndís Hera Gísladóttir og Ásgeir Kolbeinsson. Ljósmynd/thorgeir.com

Ásgeir Kolbeinsson og Bryndís Hera Gísladóttir eru á leið upp að altarinu en þau trúlofuðu sig um helgina í Lundúnum.

„Ástin í lífi mínu sagði JÁ þegar ég bað hana um að trúlofast mér í London um helgina. Ég gæti ekki verið hamingjusamari, og varð bleika skýið stærra en nokkru sinni fyrr eftir þessa frábæru helgi,“ segir hann á facebooksíðu sinni. 

Parið er búið að vera saman síðan 2013 en hún keppti í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Suðurland 2012 og varð í fjórða sæti.

Í maí í fyrra bar ást þeirra ávöxt þegar þau eignuðust son.

Smartland óskar Ásgeiri og Bryndísi Heru hjartanlega til hamingju með trúlofunina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál