Venni Páer kvæntist í Vegas

Vernharð Þorleifsson og Margrét Gísladóttir giftu sig í Las Vegas.
Vernharð Þorleifsson og Margrét Gísladóttir giftu sig í Las Vegas.

Vernharð Þorleifsson eða Venni Páer eins og hann er kallaður kvæntist unnustu sinni, Margréti Gísladóttur, í gær. Brúðkaupið fór fram í Las Vegas. 

Margrét og Vernharður eru búin að vera saman í 11 ár og segir hann í samtali við Smartland Mörtu Maríu að þetta hafi verið eðlilegt skref að ganga í hjónaband. 

Venni varð þekktur þegar hann gerði sjónvarpþættina um Venna Páer sem þóttu ansi hnyttnir og skemmtilegir. Þar er hann í hlutverki einkaþjálfarans og er ekki hægt að segja annað en það gangi ýmislegt á í þáttunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál