„Við vorum ekki öll í röðinni að bíða eftir nýrri týpu af röndóttum blómavasa“

Lára Björg Björnsdóttir.
Lára Björg Björnsdóttir.

„Mínímalískur lífstíll takk fyrir sælir. Ójá, rúllum út rauða dreglinum fyrir nýjasta æðið. Nafnið eitt og sér er flókið og langt, í organdi andstæðu við allt sem er lágstemmt og nægjusamt. En höldum okkur við efnið. Nú er því sumsé básúnað um allar koppagrundir að allir eigi að tileinka sér mínímalískan lífstíl sem snýst um að einfalda lífið, eiga bara hluti sem þeir nota og minnka óþarfa og tilgangslausa neyslu,“segir Lára Björg Björnsdóttir pistlahöfundur á Kjarnanum í sínum nýjasta pistli:

Einmitt það. Ég veit ekki hvar ég á að byrja. Eða jú. Gerir fólkið sem boðar þessa trú sér grein fyrir því hvað það er pínlegt fyrir okkur sem erum saklaus af bruðli og safnaratendensum að þurfa að hlusta á þetta eins og þetta séu einhver ný fræði? Ég segi fyrir mína einföldu parta: En ekki hvað? Þegar ég opna ryðgaða laptoppinn minn, gamla hauginn sem tekur korter að ræsa, blasa nú við átján þúsund greinar um fólk sem hreinsaði allan óþarfa út af heimilinu, henti öllu og hætti að eyða peningum í óþarfa. Ójá, þarna situr liðið, boðandi fagnaðarerindið í hvítum stílhreinum sófa sem stendur á bæsuðu parketi og úti í glugga er horuð orkedía að berjast fyrir lífi sínu. Í sjálfumglaðri gospelvímu er gert mikið úr þessari „frelsun”. Þetta lætur eins og það sé að uppgötva eitthvað fyrir okkur hin. Sjálfhverfan er algjör: Fyrst þau voru í ruglinu hljótum við öll að hafa verið það.

 

En hérna kemur það: Við vorum ekki öll í röðinni að bíða eftir nýrri týpu af röndóttum blómavasa eða að slást með hnífum fyrir utan Elko á svörtum föstudegi. Og svo ég tali fyrir sjálfa mig, því ég er að skrifa þennan pistil, þá hef ég lifað eins og nirfill alla mína hunds og kattar tíð, nýtt hvert einasta snitti og aldrei keypt mér hálfan hlut nema líf mitt lægi nánast við.

Ég var svo nýtin sem barn að mamma djókaði með að ég hlyti að hafa dáið úr hungri í fyrra lífi (hafðu það matarsóun, þú verður tekin fyrir í næsta pistli). Ég  geymdi svo lítið sem hálft ritzkex þegar ég gekk frá. Ég var klukkutíma að opna eina afmælisgjöf því ég geymdi allan pappír.

Vitiði hvað ég át í nesti þegar ég var unglingur? Ég keypti mér dagsgamalt djönk úr bakaríinu á 29 krónur. Jebb. Stökkt kruðerí sem enginn snerti á nema ég og síðan kannski rotturnar í gámnum í húsasundinu á þriðja degi. Ég gerði þetta til að spara vasapeninginn minn. En var það til að kaupa mér föt eða glingur eins og neysluóð „stelpa” fyllandi upp í tómarúmið? Kristur Drottinn, nei. Ég safnaði peningnum saman í stóra hrúgu og lagði fyrir. Eins og Jóakim aðalönd. Ég vildi eiga varasjóð svona just in case. Ég var 13 ára.

Ég keypti fyrsta sófann minn um daginn. Ég er þrjátíu og fokking átta ára. Fram að því hafði ég notast við það sem var til í fjölskyldunni. Jebb. Ég hef ekki keypt mér jólakjól síðan 2003. Þegar eldri sonur minn fæddist vitiði hvað ég notaði fyrir vöggu? Gamla þvottakörfu sem ég fann heima hjá ömmu og afa og hafði einnig verið notuð sem burðarrúm árið 1953. Ég saumaði í körfuna úr gömlu vatti og rúmfötum úr geymslunni. Og ég kann varla að þræða saumavél. Neyðin og allt það.

HÉR er hægt að lesa pistilinn í heild sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál