Þurfti að borga trúlofunarhringinn sjálf

Lindsay Lohan kveðst hafa þurft að borga sinn eigin trúlofunarhring.
Lindsay Lohan kveðst hafa þurft að borga sinn eigin trúlofunarhring. Skjáskot af Instagram

Leikkonan Lindsay Lohan hefur átt í stormasömu sambandi við Egor Tarabasov en þau voru trúlofuð. Þau hafa nú slitið sambandinu og Lohan hefur greint frá því að hann hafi verið skítblankur, hún hafi meira að segja þurft að borga sinn eigin trúlofunarhring.

Þessu greindi hún frá í rússneskum spjallþætti.

Út á við virðist Tarabasov hafa það gott fjárhagslega en Lohan segir hann lifa af ríkum pabba sínum, sjálfur sé hann staurblankur. Hún kveðst því hafa þurft að borga allt á meðan þau voru saman, líka trúlofunarhringinn sem er metinn á um 35 millj­ón­ir ís­lenskra króna.

„Þetta voru mistök,“ sagði Lohan m.a. um sambandið. „Mér fannst ég vera notuð. Ég hefði átt að binda enda á þetta fyrr. Ég er ekki fórnalamb, ég er sterk manneskja,“ bætti hún við.

Fréttir mbl.is:

Enn með hringinn

Óttaðist að Egor myndi skvetta sýru fram­an í hana

Egor Tarabasov og Lindsay Lohan.
Egor Tarabasov og Lindsay Lohan. Skjáskot Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál