Umdeild auglýsing Gyðju Collection

Lokaskotið úr auglýsingunni.
Lokaskotið úr auglýsingunni. Ljósmynd/Youtube.com

Vopnaðar guggur sem ráðast inn í hús í Arnarnesinu og bjarga Sigrúnu Lilju eiganda Gyðju Collection eru í forgrunni í nýrri auglýsingu frá fyrirtækinu. Mikill hasar er í þessari auglýsingu og augljóst að ekkert var til sparað þegar átti að klæða leikara auglýsingarinnar og bílakostur er heldur ekki af lakari endanum. Auk þess var auglýsingin tekin upp í glæishúsi í Arnarnesinu. Fagmaður segir auglýsinguna ekki vera upp á marga fiska og hefur ýmislegt út á að setja. Fagmaðurinn heitir Guðni Halldórsson og starfar hjá Sagafilm. 

„Já krakkar mínir
Svona gerist þegar þú notar ekki fagaðila til að gera auglýsinguna þína
Það er ekki nóg að fá Lalla á lagernum af því hann á svona „kameru“
eða hringja í Sigga frænda því hann á klippiforrit, til að gera þetta fyrir þig,“ segir Guðni Halldórsson 

Frétt af Smartlandi: Sigrún setti sig í stellingar Kardashian 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál