„Hann er sérlega indæll“

Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar sat við hliðina á Hinriki Prins …
Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar sat við hliðina á Hinriki Prins í veislunni í gær. mbl.is/Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Ágústa Johnson, eiginkona Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og framkvæmdastjóri Hreyfingar, sat við hliðina á Hinriki prins í veislu Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands sem haldin var á Íslandsbryggju í gær. Hinrik prins er kominn á eftirlaun og vinnur engin störf nema það sem hann langar til. Guðni Th. og Eliza hafa greinilega heillað hann því hann hefur verið virkur þátttakandi í þessari opinberu heimsókn. 

Ég hafði samband við Ágústu Johnson og spurði hana hvernig hefði verið að sitja við hliðina á Hinriki. 

„Það var afskaplega ánægjulegt og heiður að fá að sitja til borðs með Hinrik. Hann er sérlega indæll og við ræddum meðal annars um hve íslensku tónlistarmennirnir, Sigríður Thorlacius og hljómsveit voru góð og hve Ísland væri framarlega í tónlist í heiminum. Við hjónin fengum einnig tækifæri þetta kvöld til að spjalla við krónprinsinn og prinsessuna og við gátum meðal annars skipst á skemmtilegum tvíburasögum við þau. Þetta er yndislegt fólk og þau tóku einstaklega vel á móti okkur Íslendingum,“ segir Ágústa. 

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar. Kjóllinn …
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar. Kjóllinn sem Ágústa klæddist er frá Joseph. mbl.is/Golli/Kjartan Þorbjörnsson
Guðlaugur Þór Þórðarson, Ágústa Johnson, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza …
Guðlaugur Þór Þórðarson, Ágústa Johnson, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid. mbl.is/Golli/Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál