Þingmaðurinn Teitur Björn Einarsson og Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Landsambands kúabænda, eiga von á sínu fyrsta barni. Teitur Björn settist inn á þing nú í haust en hann var áður aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar.
Margrét er ekki ókunn stjórnmálunum því hún var áður aðstoðarmaður Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra.
Margrét er komin 17 vikur á leið. Smartland óskar parinu til hamingju með óléttuna.