Russell Crowe elst um mörg ár

Myndir sem teknar voru af Russell Crowe með tæplega árs …
Myndir sem teknar voru af Russell Crowe með tæplega árs millibili - í byrjun janúar á þessu ári og svo nú í vikunni. AFP/Samsett mynd

Myndir sem teknar voru af Russell Crowe við frumsýningu Les Miserables í London 5. desember þykja sýna að leikarinn gengur í gegnum erfiða tíma. 

Leikarinn þótti þreytulegur á að líta og þá vakti talsverða athygli að Crowe er búinn að láta skera hár sitt og skegg. Hann var nánast burstaklipptur og alveg skegglaus. Hin nýja klipping hefur sennilega átt sinn þátt í að eftir útliti hans var tekið, enda engin hár til staðar til að fela ummerki síðustu mánaða. 

Crowe brosti þó framan í myndavélarnar þótt fjölmiðlar vestanhafs létu þess getið að það væri sem leikarinn hefði elst um mörg ár síðustu mánuði. 

Leikarinn dvaldi á Íslandi í sumar við tökur á myndinni Noah en þá hámaði hann í sig íslenskt skyr og hjólaði meðal annars frá Reykjavík til Grindavíkur á milli þess sem hann æfði stíft í Mjölni. Crowe skildi við eiginkonu sína, Danielle Spencer, í október og í framhaldinu var sagt frá því í fjölmiðlum að hann hefði átt í ástarsambandi við íslenska stúlku meðan hann dvaldi hérlendis.

Miðað við hvað hann blómstraði á Íslandi í sumar er ljóst að Crowe þarf að fá meira íslenskt skyr og anda að sér fersku lofti, spila meira á Kexinu og í Hörpu og njóta þess að vera til.

Russell Crowe og Danielle Spencer meðan allt lék í lyndi.
Russell Crowe og Danielle Spencer meðan allt lék í lyndi. Ljósmynd/AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál