Ólafur Darri geislaði í JÖR

Jemaine Clement og Ólafur Darri Ólafsson. Sá síðarnefndi var glæsilegur …
Jemaine Clement og Ólafur Darri Ólafsson. Sá síðarnefndi var glæsilegur í fötunum frá JÖR. Ljósmynd/Instagram

Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson var ansi vel klæddur á frumsýningu Big Friendly Giant í Los Angeles. Myndin er nýjasta mynd Stevens Spielbergs en hún var frumsýnd hérlendis í gær. Ólafur Darri var í sérsaumuðum jakkafötum frá JÖR þegar myndin var frumsýnd í Los Angeles. 

„Mig vantaði ný falleg föt vegna þess að í júní hefur verið mikið af hátíðum og frumsýningum og þess vegna talaði ég við þau og þau sérsaumuðu þessi fallegu föt á mig. Og ef ég fæ að ráða þá verða þetta svo sannarlega ekki síðustu jakkafötin sem ég fæ hjá þeim,“ segir Ólafur Darri himinlifandi með fötin. 

Jakkafötin, sem Sigrún Kristín Kristjánsdóttir, klæðskeri hjá JÖR, saumaði og hannaði á Ólaf Darra, eru blá á litinn. Þau eru teinótt en boðungarnir eru einlitir og í örlítið dekkri lit en fötin sjálf. Með fötunum er vesti sem kemur vel út. Við fötin var Ólafur Darri í hvítri skyrtu með bindi. 

Ólafur Darri Ólafsson og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir unnusta hans.
Ólafur Darri Ólafsson og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir unnusta hans. Ljósmynd/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál