Skrifaði bréf til sjálfrar sín

Victoria Beckham prýðir forsíðu Vogue.
Victoria Beckham prýðir forsíðu Vogue. mbl

Tískuhönnuðurinn Victoria Beckham, sem heimsótti Ísland í sumar ásamt eiginmanni sínum og börnum, prýðir októberhefti breska Vogue. Á forsíðunni er hún afslöppuð í rauðbrúnni kápu. Förðunin er í haustlitunum, andlitið er vel skyggt og lögð áhersla á dökka augnförðun. Varaliturinn er ljósrústrauður og á hárréttum stöðum er „highlighter“ sem dregur fram ljómann í húðinni. 

Victoria Beckham.
Victoria Beckham. Ljósmynd/Vogue

Ekki er um hefðbundið viðtal að ræða heldur bréf sem hún skrifar til sjálfrar sín þegar hún stundaði nám í listaskóla á unglingsaldri og var ekki með mikið sjálfstraust. Í bréfinu rifjar hún upp fyrstu kynni þeirra hjónanna, en hún er gift fótboltamanninum David Beckham. Hún játar að þeirra fyrsta stefnumót sé örlítið á reiki vegna áfengisneyslu svona eins og gengur og gerist þegar fólk í hinum vestræna heimi er að draga sig saman. Hún lýsir því líka þegar hann bað um símanúmerið hennar og hún trylltist af gleði innra með sér. 

Inni í blaðinu eru myndir, bæði í svarthvítu og í lit sem eru teknar á hótelherbergi. Myndirnar sýna frú Beckham á afslappaðan og heillandi hátt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál