Katrín stórglæsileg á rauða dreglinum

Katrín klæddist síðkjól úr smiðju Alexander McQueen, en hertogaynjan hefur …
Katrín klæddist síðkjól úr smiðju Alexander McQueen, en hertogaynjan hefur lengi verið aðdáandi tískumerkisins. Til gamans má geta að brúðarkjóll hennar var einnig frá sama merki. AFP

Bafta-verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í London í gær. Að sjálfsögðu var rjóminn af leikurum samtímans samankominn í von um að næla sér í verðlaunagrip, eða bara til þess að sýna sig og sjá aðra.

Katrín hertogaynja af Cambridge og eiginmaður hennar, Vilhjálmur prins, skelltu sér einnig á hátíðina og litu að venju glæsilega út.

Frétt mbl.is: Heitustu kjólarnir á Grammy

Skötuhjúin voru í heljarinnar stuði.
Skötuhjúin voru í heljarinnar stuði. AFP
Leikkonan Emma Stone klæddist kjól og buxum frá Chanel.
Leikkonan Emma Stone klæddist kjól og buxum frá Chanel. AFP
Naomie Harris klæddist síðkjól úr smiðju Gucci.
Naomie Harris klæddist síðkjól úr smiðju Gucci. AFP
Nicole Kidman klæddist kjól frá Armani Prive, en við hann …
Nicole Kidman klæddist kjól frá Armani Prive, en við hann bar hún fokdýra demanta. AFP
Hertogaynjan var ekki sú eina sem klæddist hönnun tískumerkisins Alexander …
Hertogaynjan var ekki sú eina sem klæddist hönnun tískumerkisins Alexander McQueen, því leikkonan Emily Blunt gerði slíkt hið sama. AFP
Meryl Streep klæddist svartri buxnadragt.
Meryl Streep klæddist svartri buxnadragt. AFP
Michelle Williams klæddist afar skrautlegum kjól úr smiðju Louis Vuitton.
Michelle Williams klæddist afar skrautlegum kjól úr smiðju Louis Vuitton. AFP
Alexander McQueen var afar vinsæll á rauða dreglinum en Hannah …
Alexander McQueen var afar vinsæll á rauða dreglinum en Hannah Bagshawe, eiginkona leikarans Eddie Redmayne, klæddist kjól frá tískuhúsinu. AFP
Franska leikkonan Isabelle Huppert klæddist kjól úr smiðju tískuhússins Chloe.
Franska leikkonan Isabelle Huppert klæddist kjól úr smiðju tískuhússins Chloe. AFP
Tískuhönnuðurinn Tom Ford lét sig ekki vanta, en hann klæddist …
Tískuhönnuðurinn Tom Ford lét sig ekki vanta, en hann klæddist eigin hönnun. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál