Landsmenn eru að tryllast yfir opnun Costco. Nú geta merkjaóðir glaðst því þar er hægt að kaupa Michael Kors, Ralph Lauren, Armani og Burberry svo dæmi sé tekið.
Þegar Tobba Marinósdóttir var á ferð í Costco í morgun myndaði hún töluvert af merkjavörugóssi sem fæst í Costco. Eins og myndirnar sýna er aldeilis sniðugt fyrir þá sem langar í kaðlapeysur og nýjar töskur að kíkja í Costco.