Stella ofursvöl í Spaksmannsspjörum

Stella Blómkvist hefur slegið í gegn í Sjónvarpi Símans Premium en hún fer með hlutverk lögfræðings sem blandast inn í æsispennandi mál. Leikkonan Heiða Reed, sem leikið hefur í þáttunum Poldark, leikur Stellu. Björg Ingadóttir, fatahönnuður og eigandi Spaksmannsspjara, klæddi Stellu í þáttunum vinsælu en búningahönnuður þáttanna er Eva Vala Guðjónsdóttir.

Björg Ingadóttir fatahönnuður og eigandi Spaksmannsspjara.
Björg Ingadóttir fatahönnuður og eigandi Spaksmannsspjara. Morgunblaðið/Ófeigur Lýðsson

„Framleiðendurnir höfðu samband og Stella smellpassaði í Spakmannsspjara-stílinn. Hún er örugg með sig og vill vera smart en í leiðinni ekkert endilega of áberandi. Stella er grjóthörð og vill að klæðaburðurinn endurspegli það,“ segir Björg sem aðstoðaði búningahönnuð þáttanna, Evu Völu Guðjónsdóttur, við val á fötum á Stellu.

Stella Blómkvist lendir í ævintýrum og líka í mjög hættulegum aðstæðum. Einhvern veginn nær hún að vera alltaf óaðfinnanleg í öllum aðstæðum. Björg segir að það hafi verið gaman að taka þátt í þessu verkefni.

„Hún er í öllu frá okkur nema skóm og nærfötum held ég alveg örugglega. Hún er áberandi í hetjukápunni sinni og fer yfir í það að vera mjög kynþokkafull í samkvæmisfatnaði frá okkur.“

Þegar Björg er spurð að því hvað þetta hafi verið margar flíkur segist hún ekki muna það.

„Þetta var alveg slatti,“ segir hún.

Stella Blómkvist er ekki alveg þessi rósótta blómakjólatýpa og klæðnaðurinn endurspeglaði manngerðina í þáttunum. Það tókst vel til og þeir sem hafa horft á þættina sjá að Stella er ansi svöl til fara í þáttunum.

„Stella er eiginlega bara í svörtu nema í einni senu, þá er hún í „offwhite“ og í annarri í blágrænum buxum. Annars var Stella í blöndu af allskonar, hetjukápunni sem er upp í háls hjá henni, leðurbuxum og bolum og toppum, samkvæmisklæðnaði og aukahlutum,“ segir Björg.

Stella Blómkvist er í þessum buxum í þáttunum.
Stella Blómkvist er í þessum buxum í þáttunum.
Stella Blómkvist tekur sig vel út í leðurbuxum frá Spaksmannsspjörum.
Stella Blómkvist tekur sig vel út í leðurbuxum frá Spaksmannsspjörum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál