Litaði hárið út af kjólnum

Charlize Theron lét lita á sér hárið fyrir Óskarinn.
Charlize Theron lét lita á sér hárið fyrir Óskarinn. Samsett mynd

Leikkonan Charlize Theron var að margra mati ein best klædda konan á Óskarnum á sunnudaginn. Því má að einhverju leyti þakka hári hennar en leikkonan lét lita á sér hárið sérstaklega fyrir kjólinn. 

Theron er þekkt fyrir ljósa lokka og því brá einhverjum þegar hún mætti með dökkt hár á rauða dreglinum. Hárgreiðslumaður Theron, Adir Abergel, sagði í viðtali við Us Weekly að hann hefði ákveðið að lita hárið á leikkonunni þegar hann sá litinn á Dior-kjólnum sem leikkonan klæddist. Hann vildi að hárliturinn myndi skapa mótvægi við augnlitinn til að skerpa á öllu. 

„Hár er framlenging á tísku,“ sagði Abbergel. „Það getur verið langflottasti fylgihluturinn.“

Theron var með ljóst hár í síðasta mánuði eins og sést á myndinni hér að ofan. Það var því ekki auðvelt að ná fram rétta litnum en það tók nokkra daga að lita hárið. Hárgreiðslumaðurinn stytti líka hár leikkonunnar enn meira svo hálsmál kjólsins fengi að njóta sín. 

Hár leikkonunnar var tilbúið nokkrum dögum fyrir Óskarinn svo hún væri búin að venjast nýja útlitinu áður en hún mætti á rauða dregilinn. 

Hálsmálið á kjól Charlize Theron fékk að njóta sín eftir …
Hálsmálið á kjól Charlize Theron fékk að njóta sín eftir að hár hennar var klippt. mbl.is/AFP
Charlize Theron í bláum kjól frá Dior með dökkt hár.
Charlize Theron í bláum kjól frá Dior með dökkt hár. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál