Almarr til Framara

Almarr Ormarsson.
Almarr Ormarsson. Heimasíða Fram

Almarr Ormarsson tvítugur knattspyrnumaður sem leikið hefur með 1. deildarliði KA í sumar er genginn til við úrvalsdeildarlið Fram. Almarr, sem er miðju- og sóknarmaður maður, hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Safamýrarliðið.

Almarr hefur leikið með meistaraflokki KA frá árinu 2005, alls 54 leiki í deild og bikar, og hefur skorað í þeim 8 mörk. Í sumar hefur hann verið fastamaður í liðinu, hefur komið við sögu í 11 leikjum og skorað 3 mörk.

Almarr er sonur Ormars Örlygssonar, bróður Þorvaldar þjálfara Fram, en Ormar lék á sínum tíma með Fram og KA. Hann varð meistari með Fram með Fram 1986 og 1988 og bikarmeistari 1985 og 1987 og þá varð Ormar Íslandmeistari með KA árið 1989.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert